Algengar spurningar - Notendur

Er frítt að nýta sér tilboðin ?
Já! Þú þarft EKKI að vera partur af áskrift, vildarklúbb eða öðru. Mataroffer.is er vettvangur til að benda á hvar bestu tilboðin eru í bænum. Frítt fyrir neytendur
Hvað þarf ég að gera til að nýta mér tilboðin ?
Ekkert. Bara biðja um tilboðin á staðnum eða panta tilboðin á netinu. Mataroffer.is er vettvangur til að benda á hvar bestu tilboðin í bænum eru.
Get ég séð gildistímann ?
Já, á myndunum uppi í vinstra horni á hverju einasta tilboði stendur á hvaða tíma dags tilboðin gilda.
Hversu oft eru ný tilboð sett inn?
Ný tilboð geta bæst við hvenær sem er yfir daginn. Við uppfærum síðuna reglulega svo þú sjáir alltaf nýjustu tilboðin.
Hvar get ég séð tilboð alla daga vikunnar?
Undir kaflanum "Tilboð aðra daga" er hægt að sjá tilboð alla aðra daga.

Algengar spurningar - Fyrirtæki

Hvernig get ég auglýst tilboð á MatarOffer?
Hafðu samband við okkur í síma eða email. Við setjum tilboðið þitt upp og tryggjum að það birtist rétt á síðunni.
Hversu fljótt birtist tilboðið?
Öll ný tilboð eru birt innan 12 klukkustunda, en í flestum tilfellum gerist það mun fyrr.
Hver getur auglýst á MatarOffer?
Öll fyrirtæki sem selja mat eða drykk geta sótt um að birta tilboð hjá okkur, hvort sem um er að ræða veitingastaði, skyndibitastaði, kaffihús, bakarí eða aðra matsölustaði. Mataroffer.is er hins vegar ekki vettvangur fyrir matvöruverslanir til að auglýsa.
Get ég birt fleiri en eitt tilboð?
Já. Verðlagning fer eftir hversu mörg tilboð eru birt
Get ég birt mismunandi tilboð fyrir mismunandi vikudaga?
Já. Hægt er að skilgreina mismunandi tilboð fyrir ákveðna daga og tíma.
Get ég séð hversu margir skoða tilboðin mín?
Við erum með tölfræði um hversu margir heimsækja síðuna daglega.